top of page
Líðan samhliða sjúkdómum
Lagt er upp með fimm vikna námskeið þar sem farið er yfir almenna fræðslu um langvinna sjúkdóma, að lifa samhliða slíkum sjúkdómum og áhrif þeirra á líðan í daglegu lífi. Miðað er við að námskeiðin eru einu sinni í viku (2 klst. í senn). Samtals klukkutímafjöldi eru 10 klst. Þátttakendur á námskeiðinu fá æfingar til að sinna á milli tíma. Við lok námskeiðs fá þátttakendur síðan æfingar sem hægt er að sinna áfram til að viðhalda þeirri þekkingu og kunnáttu sem þau öðlast til að takast betur á við bakslög í framtíðinni.

Yfirlit yfir atriði sem farið er yfir á námskeiðinu:
-
Að greinast með langvinnan sjúkdóm og takast á við breytingar
-
Áhrif hugsana á líðan samhliða sjúkdómum
-
Bjargráð og temprun
-
Önnur hjálpleg úrræði
-
Bakslagsvarnir
bottom of page

